Hraustur líkami. Skýr hugur. Einfalt kerfi.
Byggðu styrk, skýrleika og sjálfsvirðingu.
Lífskraftur hjálpar mönnum að byggja upp hraustan líkama, heilbrigðar venjur og meira sjálfstraust með einföldu kerfi sem hentar raunverulegu lífi.
Lífskraftur kerfið
Skýrt og einfalt kerfi - langvarandi árangur.
Þjónustan
Ekki bara æfingaplan. Kerfi fyrir lífið.
Markmiðið er ekki fullkomnun. Markmiðið er að setja upp kerfi sem gerir rétta hegðun sjálfvirka.
Fyrir hvern?
Fyrir menn sem vilja byggja sig upp og taka lífsstílinn í gegn.
Fyrir menn sem vilja koma sér á rétta braut með einfaldri rútínu, betri heilsu og meiri stjórn á daglegu lífi.
Við förum yfir stöðuna
Markmið, venjur og hvað hefur haldið aftur af þér hingað til.
Við setjum upp skýrt kerfi
Æfingar, næring og venjur sem passa inn í raunverulegt líf.
Við höldum þér á réttri braut
Regluleg eftirfylgni, aðhald og stuðningur.

Um mig
Egill Þór Jóhannsson
Ég er menntaður tölvunarfræðingur og einkaþjálfari með mikinn áhuga á líkamsrækt, næringu og heilbrigðum lífsstíl.
Ég hef prófað margar aðferðir í gegnum árin, gengið of langt, brunnið út og smám saman þróað einfaldari og sjálfbærari nálgun.
Í dag hjálpa ég mönnum að byggja upp heilsu, styrk og sjálfbærar venjur með skýru og einföldu kerfi.
Verðskrá
Vegferðin hefst með einföldu samtali.
Við förum yfir stöðuna og markmiðin og gerum plan.
Bóka frían fund